Zap - Hausmynd

Zap

Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Kosningaprófið

Nokkuð snjallt kosningaprófið hjá þeim Bifrastarmönnum.

 Ég hef átt í smávandræðum með að gera endanlega upp við mig hvað ég ætti að kjósa. Tengdapabbi heitinn hélt alltaf að ég væri argasta íhald, en ég viðurkenni fúslega að ég hef kosið ýmsa flokka í gegnum tíðina (og allt litrófið) eftir aðstæðum hvers tíma. Enginn flokkur á mitt atkvæði víst.

Tók þess vegna prófið svona í gamni til að sjá hvar maður stæði raunverulega. Og viti menn, enginn einn flokkur á mitt atkvæði víst samkvæmt niðurstöðu prófsins Wink Er að furða að maður sé í vafa.

Þrír flokkar áttu hver um sig um og yfir 30% samleið með mínum skoðunum. X-S fékk 36% hjá mér og var efst, en ég er samt að hugsa um að segja pass við þeim í þetta skipti. Mér þykir því miður að forysta þeirra og helstu málsvarar séu ekki nógu traustvekjandi til þess að ég vilji sjá þann flokk í forystuhlutverki í ríkisstjórn.

Í öðru sæti á mínum lista var X-F. Þeir fá hins vegar aldrei mitt atkvæði, svo mikið er víst. Þeir skoruðu væntanlega þetta hátt hjá mér vegna spurningarinnar um afstöðu til fiskveiðistjórnar, ekki vegna afstöðu til innflutnings verkafóks. Málflutningur þeirra í flestum málum gengur bara alls ekki upp.

Í þriðja sæti kom svo X-I. Ég hef verið volgur fyrir þeim frá upphafi. Auðvitað gengur þeirra málflutningur ekkert alveg upp heldur frekar en annarra. Ég er heldur ekkert eins eindreginn stóriðjuandstæðingur eins og þeir, en það væri bara svo ferskt að fá Ómar inn á þing (hann er hins vegar ekki í mínu kjördæmi) og hans sjónarmið sem mótvægi við öfgum beggja meginstraumanna. Þá á ég við stóriðjufylleríi ríkisstjórnarflokkanna beggja, og 'á móti öllu' öfgum vinstri grænna.

Ég fékk aðra fjölskyldumeðlimi til að taka prófið líka og það kom skondin niðurstaða út úr því. Í flestum tilfellum miklu meira afgerandi niðurstaða en hjá mér og lengra út á vinstri vængnum FootinMouth Ég get náttúrulega ekki verið að gefa upp einstaka niðurstöður hér, en öllum til mikillar undrunar og nokkurar hneykslunar þá fannst einn X-B í hópnum. Það skyldi þó aldrei fara svo að þeir ynnu enn einn óvænta varnarsigurinn.

En yfir í annað. Fannst engum fyndið þegar Steingrímur Joð spurði Jón Sig hvort það væri rétt sem hann hefði heyrt að sonur hans hefði gert auglýsingu þeirra sem beindist gegn VG? Mér fannst frábært hjá Jóni að segja bara að hann hafi enga vitneskju um það. Þetta er svo indælt þegar að logið er blákalt að manni án þess að líta undan eða blikka auga. Svoleiðis hroki er mannkostur sem stjórnmálamenn virðast telja að verði að vera til staðar. Svo komast menn líka svo vel upp með svoleiðis hérlendis. En auðvitað er fólk ekki fífl!

En hvað með það þó sonur Jóns hafi gert auglýsinguna? Þurfti Jón nokkuð að ljúga til um það að hann vissi ekkert um málið? Kemur einhverjum það við? Gat hann ekki bara sagt, "Jú, við réðum auglýsingastofu sonar míns til að gera þessa auglýsingu vegna þess að við fengum frá þeim gott tilboð" Er eitthvað hneyksli í þessu? Eru menn svo hræddir um að valda hneyksli að þeir þora ekki einu sinni að ræða opinskátt um eðlilegustu hluti í heimi? En ég skal fúslega viðurkenna að ég veit ekkert hvort Steingrímur Joð hafði eitthvað fyrir sér í þessu.

Nóg um það. Gleðilega kosningahátíð. Sjáum hver staðan verður að morgni.


Loksins fékk ég myndina í hausinn ....

Ég var að hugsa um hvort ég ætti að reyna að blogga eitthvað af mikilli speki í kvöld.

Hefur langað til þess annað veifið að tjá mig um álversstækkunarmálið og kosningarnar næstu helgi. Nenni því samt ekki. Ég er ekki búinn að ákveða ennþá hvernig ég greiði atkvæði mitt. Leiðist eiginlega alhæfingar og útúrsnúningur (rök og mótrök á fínna máli) málsaðila. Ég verð að gera upp hug mín út frá mínum eigin forsendum, en ég hef alla vega vikuna til þess.

Svo lá við að ég færi að reyna að gera athugasemd við blogg færslu Jóns Vals Jenssonar þar sem hann bísnast yfir því að almannafé sé ausið í samkynhneigða. Sá hins vegar þegar ég las yfir athugasemdirnar sem hann hafði fengið og andsvör hans við þeim að ég mundi ekki hafa mikið til málanna að leggja. Nokkuð ljóst að þessum manni verður ekki hnikað til umburðarlyndis eða hann fenginn til að viðurkenna að það felist ákveðinn hroki í því að vera svona öruggur eins og hann virðist vera með að allur sannleikur lífsins felist í biblíunni og boðskapur hennar sé óskeikull og því séu þeir sem læri þau fræði og fái þar með leyfi til að túlka boðskap biblíunnar fyrir okkur hin ólærðu líka óskeikulir. Það sem ég var hins vegar að hugsa um að segja, sem athugasemd mína við upphaflegu færslu Jóns, um þessar upphæðir sem Samtökin 78 hafa fengið í gegnum tíðina var eiginlega bara þetta: 'So....?'

Svo eru menn byrjaðir að blogga um útsetningu Spaugstofumanna á þjóðsöngnum. Ég var einmitt að hugsa þegar ég sá þetta hjá þeim að nú yrðu þeir sennilega skammaðir. Verst að sennilega verða þeir kærðir líka fyrir brot á lögum nr. 7 frá 1983. Brot þeirra varðar sektum eða varðhaldi allt að 2 árum! Vonandi verður þeim þó sýnd linkind og þeir (eða RÚV sem ábyrgðarmenn þeirra) bara sektaðir um svona 5 þúsund kall hver (*2 því þeir voru fjölfaldaðir í kórnum sem flutti verkið). Vel gert hjá þeim, frábært atriði.

En, eins og sést á þessu þusi í mér hef ég svo sem ekkert fram að færa þannig að ég breytti bara í staðinn aðeins útlitinu á síðunni minni í von um að einhver tæki kannski eftir því. Myndina sem prýðir núna efsta hluta síðunnar tók konan mín. Mér finnst hún mögnuð (þ.e. myndin, en auðvitað konan líka LoL). Hún er tekin frá stéttinni fyrir framan húsið okkar í áttina að klaustrinu í Hafnarfirði um tunglbjarta nótt um jólaleytið. Ég var búinn að ætla mér að koma þessari mynd í hausinn í nokkuð langan tíma.

 


« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband